Um okkur

AMC Hafborg ehf er fjölskyldurekið fyrirtæki sem byggir á trausti, fagmennsku og persónulegri þjónustu. Að baki fyrirtækinu standa hjónin Alfreð Már Clausen, húsasmiður og Adda Hafborg.

Sagan okkar

AMC Hafborg ehf er fjölskyldurekið fyrirtæki sem byggir á trausti, fagmennsku og persónulegri þjónustu. Að baki fyrirtækinu standa hjónin Alfreð Már Clausen, húsasmiður, og Adda Hafborg, sem hafa sameiginlega sýn um að gera húsbyggingar einfaldari og öruggari fyrir viðskiptavini sína.

Við sérhæfum okkur í einingahúsum og heildarlausnum þar sem við fylgjum viðskiptavinum frá fyrstu hugmynd að fullbúnu heimili. Við sjáum um allt ferlið — hönnun, skipulagningu, samskipti við yfirvöld, jarðvinnu, grunn og framkvæmd — Viðskiptavinurinn fær einn traustan aðila sem heldur utan um verkefnið frá upphafi til enda.

Við vinnum náið með hönnuði og leggjum áherslu á hagkvæmar lausnir, notagildi og vandaða framkvæmd. Fyrir okkur snýst þetta ekki bara um að byggja hús, heldur að skapa heimili sem fólk hlakkar til að koma heim til.
Í gegnum árin höfum við komið að fjölbreyttum verkefnum víðs vegar um landið, þar á meðal raðhúsum á Eskifirði, fjölbýlishúsi á Reyðarfirði, parhúsi í Suðurnesjabæ, fjölbýlishúsi í Vestmannaeyjum og nokkrum sumarhúsum í Reykjaskógi.

Við vitum að margir hafa áhyggjur af aukakostnaði, töfum og gæðum þegar kemur að nýbyggingum. Þess vegna leggjum við sérstaka áherslu á skýr samskipti, góða kostnaðaráætlun og fyrsta flokks gæðaeftirlit frá upphafi til enda.

Auk húsbygginga bjóðum við einnig upp á faglega þrifþjónustu þar sem áreiðanleiki, sveigjanleiki og smáatriðin skipta öllu máli.
Hvort sem þú vilt láta byggja draumaheimilið, sumarhús eða þarft trausta þjónustu við fasteignina þína, þá leggjum við okkur fram um að gera ferlið einfalt, öruggt og persónulegt.

AMC Hafborg ehf er fjölskyldurekið fyrirtæki sem byggir á trausti, fagmennsku og persónulegri þjónustu.

Stefnan okkar

Við bjóðum upp á heildarlausn þar sem okkar teymi sér um allt sem þarf til að koma verkefninu í framkvæmd.

Við fylgjum viðskiptavinum okkar í gegnum allt ferlið — frá hugmynd, að fyrstu skóflustungu og þar til eignin er tilbúin til afhendingar.

Við vitum af reynslu að framkvæmdakostnaður getur hækkað verulega ef ekki er unnið út frá traustum tilboðum fyrir verkefnið í heild.

Ferlið okkar

„Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af ferlinu — við sjáum um það fyrir þig.“ Við vitum af reynslu að framkvæmdakostnaður getur hækkað verulega ef ekki er unnið út frá traustum tilboðum og góðri áætlun fyrir verkefnið í heild frá byrjun. Þess vegna bjóðum við upp á heildarlausn þar sem okkar teymi sér um allt sem þarf til að koma verkefninu í framkvæmd — og klára það. Við sjáum meðal annars um:

Teikningar og hönnun
Jarðvegsvinnu og undirbúning
Smíði hússins í heild
Flutning og uppsetningu
Glugga og hurðir
Þak og klæðningar
Málningu, parket og flísalagnir
Innréttingar og tæki
Samskipti við byggingaryfirvöld
Verkstjórn og yfirsýn yfir framkvæmd
Lokaúttekt og afhendingu

Fagteymið okkar

Hönnuður
Verkfræðingur
Byggingastjóri
Húsasmíðameistari
Rafvirkjameistari
Pípulagningameistari
Múrarameistari

Gildin okkar

Þessi gildi leiðbeina okkur í öllu sem við gerum

Traust Heiðarleiki
Við leggjum áherslu á traust og heiðarleika í okkar samskiptum og verkum, hvort sem það er til viðskiptavina okkar eða starfsmanna.
Gæði Hagkvæmni
Við seljum gæða þjónustu og vörur sem við treystum. Hagkvæmni í efnisvali til viðskiptavina er mikilvægt.
Lausnir Útsjónarsemi
Vid leggjum áherslu á lausnamiðaða nálgun og nýtum reynslu okkar til ad finna réttu leiðina hverju sinni. Með fagmennsku og útsjónarsemi aðstoðum við viðskiptavini okkar við að finna lausnir sem henta þeirra þörfum.

Vörumerkin okkar

Tvö sterk vörumerki undir sama fyrirtæki

Einingahús

Við byggjum vönduð íslensk einingahús og leggjum áherslu á persónulega þjónustu, fagleg vinnubrögð og öruggt ferli frá upphafi til enda.

Þrif og umsjón

AMC Hafborg Þrif og Umsjón sérhæfir sig í þrifum og umsjón fyrir Airbnb eignir, sumarhús og ferðaþjónustu á Gullna Hringnum.

Tímalína

  1. 2016

    Fyrirtækið stofnað

  2. 2018

    Viðhald og smíði

  3. 2021

    Nýbyggingar

  4. 2026

    Tvö vörumerki

    Einingahús og Þrif undir sama þaki

Teymið okkar

Adda Hafborg

Adda Hafborg

Framkvæmdastjóri

Alfreð Már Clausen

Alfreð Már Clausen

Verkefnastjóri