AMC Hafborg Þrif og Umsjón sérhæfir sig í faglegri Airbnb þrifaþjónustu og fasteignaumsjón á Gullna Hringnum.
Við leggjum áherslu á áreiðanleika, gæði og framúrskarandi þjónustu þannig að hver eign sé tilbúin fyrir næstu gesti — í hvert einasta skipti.


Þjónustan okkar hentar jafnt einstaklingum sem rekstraraðilum sem vilja örugga og faglega umsýslu á sínum eignum, hvort sem um er að ræða regluleg skipti þrif eða heildarumsjón með fasteignum.
Við vinnum með tveggja manna teymum til að tryggja hraða, skilvirkni og vönduð vinnubrögð í öllum verkefnum.

Öll verð eru án vsk
Fagleg skipti þrif fyrir Airbnb eignir þar sem áhersla er lögð á hreinlæti, góða fyrstu upplifun og áreiðanlega þjónustu fyrir næstu gesti.
Grunnþjónusta
| Stærð | Verð |
|---|---|
| 0–50 m² | frá 18.900 |
| 51–100 m² | frá 28.900 |
| 101–150 m² | frá 38.900 |
| 151–200+ m² | frá 48.900 |
Öll verð eru án vsk
Fyrsta flokks þjónusta fyrir eigendur sem vilja fullkomnari umsýslu og meiri þægindi í rekstrinum.
| Stærð | Verð |
|---|---|
| 0–50 m² | frá 29.900 |
| 51–100 m² | frá 39.900 |
| 101–150 m² | frá 49.900 |
| 151–200+ m² | frá 59.900 |
Heildarlausn fyrir fasteignaeigendur sem vilja faglega umsýslu á sínum Airbnb rekstri.
Við vinnum náið með eigendum til að tryggja öruggan, skilvirkan og faglegan rekstur fasteigna allt árið um kring. Verð fyrir fulla þjónustu er sérsniðið eftir umfangi verkefna og þörfum hverrar eignar. *Aukagjald getur verið sett á ef eignin er mjög skítug sem staðfestist með myndum en þarf að vera samþykkt skriflega af eiganda eignarinnar og AMC HAfborg Þrif og Umsjón.
Sendu okkur upplýsingar um eignina og hvaða þjónustu þú óskar eftir
Við sendum verðtilboð og finnum hentugan tíma.
Við mætum á umsömdum tíma og sjáum um þrifin af fagmennsku.
Við tryggjum að eignin sé hrein, snyrtileg og tilbúin fyrir næstu gesti.