Tinna er vel skipulagt 98 m² hús með björtu og nútímalegu yfirbragði. Hentar sem íbúðarhús eða sumarhús.

Húsið er með opnu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast á hlýlegan og praktískan hátt og stórir gluggar skapa góða birtu og fallega tengingu út á pall. Svefnherbergisálman er vel aðskilin frá alrýminu og býður upp á góð herbergi, tvö baðherbergi og hagnýt rými fyrir daglegt líf. Tinna hentar vel fyrir þá sem vilja notalegt, hagkvæmt og fallegt heimili með góðu flæði, rúmgóðu útisvæði og nútímalegri hönnun.