Sunna er vel skipulagt 160 m² fjölskylduhús, þar af 30 m² bílskúr

Húsið er með björtu og rúmgóðu alrými þar sem eldhús með eyju, borðstofa og sjónvarpsrými tengjast fallega saman og mynda hjarta heimilisins. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, þar af hjónaherbergi með fataherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og stórt opið anddyri. Skipulagið er praktískt og fjölskylduvænt, með góðu flæði milli rýma og beinu aðgengi að bílskúr. Sunna sameinar notagildi, rými og hlýlegt yfirbragð í fallegu og nútímalegu heimili.