Freyja er fallegt og vel skipulagt 85 m² hús sem nýtir hvern fermetra einstaklega vel. Hentar sem íbúðarhús eða sumarhús.

Húsið er með björtu og opnu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa renna saman í rúmgott og hlýlegt hjarta heimilisins, með góðri lofthæð upp í mæni. Í húsinu eru tvö svefnherbergi, baðherbergi með walk-in sturtu, sér þvottahús og praktískt anddyri með fatahirslu. Freyja hentar vel fyrir þá sem vilja notalegt, nútímalegt og hagkvæmt heimili með góðu flæði og skýru skipulagi.