Binna er notalegt og vel skipulagt 80 m² sumarhús með hlýlegu og nútímalegu yfirbragði.

Húsið er með björtu opnu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda skemmtilegt rými fyrir samveru fjölskyldu og vina. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, þar af eitt með koju, auk baðherbergis og praktísks skipulags sem nýtir fermetrana vel. Stór pallur stækkar dvalarrýmið út fyrir húsið og heitur pottur gerir Binnu að einstaklega notalegum stað til að njóta frítímans allt árið um kring.